
Athafnir
Sóknarprestur Víðistaðakirkju sér um skírnir, fermingar, hjónavígslur og útfarir. Kirkjuvörður tekur við beiðnum um athafnir og staðfestir tíma í samráði við prest.
Skírn
Skírnin er tákn um kærleika og vernd Guðs. Ekki er greitt fyrir skírnir í Víðistaðakirkju.
Ferming
Fermingarfræðsla er á fimmtudögum kl. 15:15. Skráning í fermingu vorið 2027 er hafin.
Hjónavígsla
Kirkjan og safnaðarheimilið henta vel fyrir brúðkaup og brúðkaupsveislur.
Útför
Sóknarprestur og starfsfólk kirkjunnar veita fjölskyldum stuðning. Safnaðarheimilið tekur um 100 manns í erfidrykkju.
Sálgæsla
Viðtalstímar sóknarprests eru alla virka daga nema mánudaga kl. 11 til 12 og eftir samkomulagi.
Víðistaðakirkja
Víðistaðakirkja var vígð 28. febrúar 1988. Húsið hönnuðu Óli G. H. Þórðarson arkitekt og Lovísa Christiansen innanhússarkitekt og séð ofan frá minnir það á engil með útbreidda vængi. Kirkjan og safnaðarheimilið nýtast saman og kirkjan þykir mjög gott tónlistarhús.