Ferming
Í fermingunni staðfestir þú skírnina þína og segir já við því að eiga samleið með Jesú.
Fermingarfræðslan er á fimmtudögum kl. 15:15. Skráning í fermingu vorið 2027 er hafin hjá kirkjuverði.

Fermingarfræðslan
Hópurinn hittist á fimmtudögum kl. 15:15 yfir veturinn.
Fermingarbörn sækja minnst átta guðsþjónustur yfir veturinn og fá stimpil í Kirkjulykilinn. Farið er í dagsferð í Vatnaskóg.
Kennt er úr bókinni Con Dios sem kostar 2.500 kr.
Skráning
Skráning í fermingu vorið 2027 er hafin.
Hafðu samband við kirkjuvörð í síma 565-2051 eða á netfangið kirkjuvordur@vidistadakirkja.is.